6.10.2010 | 10:32
Þjóðinni blæðir.
Líklega eru að verða vatnaskil í stjórnmálum þessa lands. Fjöldinn sem mætti á Austurvöll segir allt sem segja þarf. Stóra spurningin er hvaða völd ríkisstjórnin hefur,bankarnir sem styrktir voru með fjármunum fóksins þráast við og sækja harkalega í vasa almennings. Slitastjórnir sitja sem fastast og greiða sér svívirðileg laun . Afskriftir til fyrirtækja eru meiri en fólkið í landinu þyrfti til að halda heimilum sínum. Ekki er talað um að allt fari á hvolf þegar hrunverjar seilast í ríkissjóð . Snillingar stofna dótturfélög sem fá hundruð milljóna afskrifaðar og sum einhverja milljarða meðan móðurfélögin greiða drjúgan arð til eigenda sinna. Fyrir tíma tölvutækninnar hefðu flestir þessara aðila verið settir á Hraunið sem dæmdir ræningjar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.