4.12.2009 | 12:17
Þrælsekir berja sér á brjóst.
Hef hlustað á alþingismenn um skeið og fylgst með framgangi þeirra og fasi. Maður gæti haldið að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafi verið utan stjórnar í tugi ára,svo ábúðarmiklir, saklausir og oflætissamir eru þeir að sjá. Til minnis vil ég geta þess að þeir opnuðu á kvótasukkið, þeir rændu íslensku bönkunum frá þjóðinni, þeir slepptu fjárglæframönnum lausum og þeir eiga alla sök á hvernig komið er fyrir þjóðinni í dag. Enn er vegið í sama knérunn enn syrtir í álinnn og meir blæðir þjóðinni. Það þarf annatveggja sterk bein eða glæpsamlega heimsku að veifa logandi kyndli á brunastað og berja á þeim sem reyna að slökkva eldana.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.