8.12.2009 | 12:08
Leysum húsnæðisvanda misyndismanna.
Fyrir utan óbærilegar áhyggjur af baráttu þeirra sem minnst mega sín og enn kreppir að, hef ég áhyggjur af húsnæðisvanda glæpa og misyndismanna. Fjöldinn sleppur vegna þess að ekki er hægt að koma þeim bak við lás og slá. Mál er því að linni ,við höfum vinnufúsar hendur skráðar á atvinnuleysisskrá með margþætta verkþekkingu og við getum veitt þeim vinnu. Einfalt, ódýrt, þægindalítið bráðabirgðahúsnæði með rými fyrir allt að 1000 glæpamenn myndi þurrka út biðlista og koma mönnum til arðbærra starfa í þágu þjóðfélagsins að afplánun lokinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.